Auglýsingaherferðin Inspired by Iceland vann í kvöld ein eftirsóttustu verðlaun í Evrópu sem nefnast Euro Effie. Tilkynnt var um úrslitin í Brussel í kvöld.

Herferðin hlaut fyrstu verðlaun fyrir bestu auglýsingaherferðina og gullverðlaun fyrir notkun á samfélagsmiðlum.

Samtökin EACA veita verðlaunin. Inspired by Iceland var samkvæmt tilkynningu frá iðnaðarráðuneytinu í fyrra samstarfs-verkefni ráðuneytisins, Icelandair, Reykjavíkurborgar, Iceland Express, Útflutningsráðs (nú Íslandsstofu) og Samtaka ferðaþjónustunnar.

Íslandsstofa tók við verðlaunum fyrir hönd verkefnisins en Íslenska auglýsingastofan var auglýsingastofa herferðarinnar.