© Aðsend mynd (AÐSEND)

Jóhann Benediktsson hefur verið ráðinn markaðsstjóri Icelandair í Norður-Ameríku. Hann hefur starfað hjá Icelandair síðustu ár, nú síðast sem markaðsstjóri fyrirtækisins í Skandinavíu.

Jóhann útskrifaðist með B.Sc. í alþjóðamarkaðsfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2003 og svo með M.Sc. gráðu í sama fagi frá Copenhagen Business School árið 2006.

Jóhann er giftur Guðrúnu Helgadóttur og eiga þau saman þrjú börn, en hann mun opinberlega hefja störf í Norður-Ameríku þann 1. júní og flytja með fjölskyldunni til Boston í sumar.