Jón Sigurðsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri á fjárfestingarsviði FL Group hf. Jón mun hafa umsjón með stefnumarkandi fjárfestingum FL Group, yfirtökum og umbreytingarverkefnum. Ráðning Jóns er liður í því að styrkja fjárfestingarstarfsemi FL Group sem fer mjög vaxandi. Jón mun starfa við hlið Alberts Jónssonar, nýráðins framkvæmdastjóra FL Investment.

"Við erum að byggja upp öflugan hóp sérfræðinga í fjárfestingarstarfsemi innan FL Group og Jón er þar sterkur liðsmaður", segir Hannes Smárason, starfandi stjórnarformaður FL Group í tilkynningu frá félaginu.

Frá árinu 2003 hefur Jón starfað í fyrirtækjaráðgjöf Landsbanka Íslands en þar áður var hann í fyrirtækjaráðgjöf Búnaðarbanka Íslands. Jón er viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík.