Fyrrverandi körfuknattleiksmaðurinn Michael Jordan er tekjuhæsti fyrrum íþróttamaðurinn samkvæmt úttekt Forbes . Tímaritið metur tekjur hans á árinu 2014 hundrað milljónir bandaríkjadollara. Jordan er 52 ára gamall og spilaði sinn síðasta körfuboltaleik sem atvinnumaður árið 2003. Næstur á eftir honum á listanum er knattspyrnumaðurinn David Beckham með 42 milljónir í tekjur á síðasta ári.
Mestar tekjur hefur hann af því að ljá nafn sitt við skóvörumerki íþróttavöruframleiðandans Nike en Nike Jordan skór seldust á síðasta ári fyrir 2,6 milljarða bandaríkjadollara og jukust um heil 17%. Aðrar tekjur hefur hann af styrktarsamningum við fyrirtæki á borð við Gatorade, Hanes, Upper Deck, 2K Sports og Five Star Fragrances. Hann á einnig 90% hlut í körfuboltaliðinu Charlotte Hornets sem gerði hann að milljarðamæringi á síðasta ári.
10 tekjuhæstu fyrrum íþróttamennirnir samkvæmt lista Forbes.
- Michael Jordan (100 milljónir dollara)
- David Beckham (42 milljónir dollara)
- Arnold Palmer (42 milljónir dollara)
- Jack Nicklaus (28 milljónir dollara)
- Jerry Richardson (23 milljónir dollara)
- Shaquille O´Neill (21 milljón dollara)
- Gary Player (21 milljón dollara)
- Magic Johnson (20 milljónir)
- Pelé (16 milljónir)
- Greg Norman (16 milljónir)