Kaup Facebook á mynddeiliforritinu Instagram voru kynnt í apríl fyrr á árinu. Nú hafa þessi kaup gengið í gegn en kaupverðið er 1 milljarður dollara.

Loks þegar þessum kaupum er lokið er stutt í að Instagram deili 5 milljörðustu myndinni en það þýðir að yfir 5 milljarða mynda hafa verið teknar og deilt með forritinu.

Facebook segir að Instagram muni halda vissu sjálfstæði þrátt fyrir kaupin en muni samt flytja í höfuðstöðvar Facebook.