KB banki hefur ákveðið að hækka vexti óverðtryggðra inn- og útlána frá og með 11. desember. Vaxtabreytingin er gerð í kjölfar tilkynningar Seðlabankans um hækkun stýrivaxta um 1,00 prósentustig. Vextir óverðtryggðra útlána hækka um 0,75 til 1,00 prósentustig. Þannig hækka kjörvextir óverðtryggðra skuldabréfa úr 9,65 í 10,65%.

Vextir óverðtryggðra innlána hækka um allt að 0,80 prósentustig, þó mismunandi eftir innlánsformum. Þannig hækka vextir Kostabókar og Markaðsreiknings um 0,50 til 0,80 prósentustig og verða þeir á bilinu 4,25 til 7,00%.

Bankinn breytir ekki vöxtum verðtryggðra inn- og útlána.