Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðarráðherra mun ekki gera breytingar á lögum um kynjahlutfall í stjórnum fyrirtækja á þessu þingi og sér ekki fram á að gera róttækar breytingar í haust. Hún ætlar þó að skoða  hvort hægt sé að betrumbæta lögin. Fjallað var um lögin á fundi iðnaðarráðherra í morgun.

VB Sjónvarp ræddi við Ragnheiði Elínu.