Á aðalfundi Málms ? samtaka fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði bar það til tíðinda í 70 ára sögu félagsins að kona var í fyrsta skipti kjörin í stjórn. Hún heitir Auður Hallgrímsdóttir og er úr Járnsmiðju Óðins ehf. og situr þar nú með átta karlmönnum.


Núverandi stjórn Málms er skipuð eftirtöldum:
Brynjar Haraldsson, Frostverki, formaður
Auður Hallgrímsdóttir, Járnsmiðju Óðins
Bjarni Thoroddsen, Stálsmiðjunni
Bolli Árnason, GT-Tækni
Grímur Garðarsson, Skaganum
Hallgrímur Þorvaldsson, Hellu
Jón Dan Jóhannsson, Sandblæstri og málmhúðun
Ólafur R. Guðjónsson, Vélsmiðju Ó.R.G.
Stefán Sigurðsson, Skipasmíðastöð Njarðvíkur