KPMG á Íslandi hefur fest kaup á rekstri OZIO, en OZIO sérhæfir sig í ráðgjöf og hugbúnaðarþróun á stafrænum lausnum fyrir Microsoft vinnuumhverfið. Þetta kemur fram í tilkynningu.

OZIO var stofnað árið 2017 og hefur aðstoðað fjölmörg íslensk fyrirtæki í því að nýta Microsoft 365 með skilvirkum hætti auk sem það hefur þróað fjölmargar stafrænar fyrirtækjalausnir. Hjá OZIO starfa í dag fjórir starfsmenn en forsvarsmaður fyrirtækisins er Sigurjón Hákonarson.

„Með kaupunum á OZIO mun KPMG verða enn betur í stakk búið til að geta boðið viðskiptavinum sínum öflugt þjónustuframboð á sviði stafrænnar þróunar. Má þar nefna þætti eins og áhættustjórnun, gæða- og upplýsingastjórn, skjalastjórnun og rafvæðingu ferla auk almennrar ráðgjafar og stefnumótunar í stafrænni þróun fyrirtækja,“ segir í tilkynningu. Jafnframt munu viðskiptavinir OZIO fá aðgang að sérfræðingum KPMG á ýmsum sviðum, til dæmis áhættustjórnun og lykilferlum fjármálafyrirtækja og lífeyrissjóða.

Kaupin hafa þegar gengið í gegn og mun starfsfólk OZIO flytja í skrifstofur KPMG í Borgartúni 27 á næstu dögum.