Forsvarsmenn Landic Property fóru í gærmorgun á skrifstofur Keops Development í Danmörku og tóku við stjórn félagsins af Stones Invest, samkvæmt upplýsingum frá Páli Benediktssyni, upplýsingafulltrúa Landic Property.

Lögfræðingar Landic Property sendu Stones Invest jafnframt bréf þar sem yfirtakan var tilkynnt og um leið gerðar kröfur á Stones um endurgreiðslur á þeim fjármunum sem Landic Property var búið að inna af hendi vegna viðskiptanna.

Skarphéðinn Berg Steinarsson, forstjóri Landic Property, segir að fjárhæðin nemi 140 milljónum danskra króna.

„Þetta er greiðsla vegna fasteigna sem við kaupum af honum [Steen Gude, eiganda Stones Invest] í viðskiptunum,“ segir hann. „Við erum búin að efna allt okkar í þessum viðskiptum en hann ekki.“

Landic Property hefur áskilið sér allan rétt á bótum ef ekki verður orðið við fyrrgreindum kröfum og gætu skaðabótakröfur numið háum fjárhæðum.

Samkvæmt upplýsingum frá Landic Property fara starfsmenn nú yfir rekstur Keops Development til þess að fá yfirlit yfir stöðu þess og sjá hvernig Stones Invest hefur staðið að rekstrinum að undanförnu. Talið er að sú vinna muni taka nokkra daga.

„Landic Property er staðráðið í að koma rekstrinum á réttan kjöl á ný, og tryggja þannig verkefni Keops Development víðs vegar í Danmörku,“ segir í tilkynningu frá Páli.

„Greinilegt var að Stones Invest hafði ekki burði til þess að halda framkvæmdum gangandi og það var ein meginástæðan fyrir því að Landic ákvað að yfirtaka reksturinn. Með því sýnir Landic ábyrga afstöðu gagnvart öllum aðilum, lánardrottnum, fjárfestum og verktökum. Mun meira tjón hefði hlotist af því að koma verkefnum í þrot, því þau eru flest mjög langt á veg komin og arðbær fjárfesting til framtíðar.“