Lénið krispykreme.is hefur verið skráð af heildsölunni Hagar sem rekur meðal annars Hagkaup, Bónus, Útilíf, Zara og banana ehf.

Um er að ræða vörumerki Krispy Kreme Doughnuts kleinuhringja- og kaffihúsakeðjunnar sem margir bera saman við Dunkin Donut´s sem opnaði hér í fyrra.

Fyrirtækin tvö eru í harðri samkeppni í Bandaríkjunum en sagt er að Dunkin Donuts leggi áherslu á gott kaffi, meðan Krispy Kreme leggi áherslu á góða kleinuhringi, segir í umfjöllun á mbl.is