Gengisvísitalan er nú 146,1 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentís og stendur krónan því styrkst um 2,9% frá opinberri skráningu krónunnar á föstudag. Opinbert gengi Seðlabankans var kl. 11 í morgun 145,93 stig en var 150,43 stig á föstudag sem þýðir styrking krónunnar um 3,1%.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun íslensku krónunnar síðasta mánuð samkvæmt gengisvísitölu Seðlabankans.

Nú stendur Evran í 114 krónum, Bandaríkjadalur í 72,6 krónum og Sterlingspund í 144,2 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 71,7 krónum og japanskt jen í 0,70 krónum.