Kvika hefur lokið við fjármögnun og stofnun nýs framtakssjóðs sem ber heitið FREYJA. Heildaráskriftarloforð sjóðsins nema 6,2 milljörðum króna og mun sjóðurinn í upphafi vera 3,5 milljarðar.

Freyja mun fjárfesta í íslenskum fyrirtækjum og vinna náið með stjórnendum og meðfjárfestum til að gera góð fyrirtæki enn betri. Sjóðurinn leggur áherslu á að fyrirtækin sem fjárfest er í tileinki sér samfélagslega ábyrgð i daglegum rekstri, setji sér umhverfisstefnu og starfi í samræmi við góða stjórnarhætti. Hluthafar Freyju eru flestir af stærstu lífeyrissjóðum landsins og aðrir fagfjárfestar.

Fyrir rekur Kvika tvo framtakssjóði, Auður I sem stofnaður var árið 2008 og Edda sem stofnaður var árið 2013.  Rekstur þessara sjóða hefur gengið vel og skilað fjárfestum ágætis arðsemi.  Auður I fjárfesti í átta félögum meðal annars TAL, Yggdrasil og Ölgerðinni, en á nú eftir eignarhluti í aðeins tveimur fyrirtækjum, Íslenska Gámafélaginu og Já upplýsingaveitum.  Edda á eignarhluti í Íslandshótelum og Securitas eftir að gengið var frá sölu á helmingshlut í Domino´s á Íslandi til sérleyfishafa Domino´s í Bretlandi fyrr á árinu. Skilaði salan yfir 50% árlegri ávöxtun til fjárfesta Eddu.

Eignastýring Kviku er burðarás bankans en bankinn starfar á breiðum grunni og veitir fjárfestum alhliða fjármálaþjónustu á innlendum og erlendum mörkuðum. Heildareignir í stýringu hjá Kviku og dótturfélögum er í dag um 280 milljarðar.

Hannes Frímann Hrólfsson, framkvæmdastjóri eignastýringar Kviku, segir að Freyja sé þriðji framtakssjóðurinn í rekstri Kviku.  „Það er ánægjulegt að sjá að allir helstu fjárfestar í sjóðnum hafa jafnframt fjárfest í fyrri framtakssjóðum okkar og er það merki um tiltrú þeirra á þeim árangri sem við höfum náð sem elsti rekstraraðili framtakssjóða á Íslandi.  Framtakssjóðir Kviku hafa tekið virkan þátt í vexti og uppbyggingu margra af stærstu og rótgrónustu fyrirtækjum landsins undanfarin ár og munum við áfram leitast við að styðja við uppbyggingu íslensks atvinnulífs með fjárfestingum í þeim fyrirtækjum sem við höfum trú á en þess má geta að þeir framtakssjóðir sem eru í okkar rekstri leggja ríka áherslu á ábyrgar fjárfestingar."