Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans.
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans.
© BIG (VB MYND/BIG)
Heildarendurgreiðsla vaxta til nærri fimmtíu þúsund viðskiptavina Landsbankans nemur nærri 5 milljörðum króna. Endanleg tala liggur ekki enn fyrir, samkvæmt upplýsingum frá Landsbankanum. Bankinn kynnti í maí skuldaniðurfellingarleiðir sem ganga lengra en fyrri leiðir, til að mynda 110% leiðin.

Meðal leiða sem bankinn kynnti var 20% endurgreiðsla af vöxtum af lánum einstaklinga og heimila sem greiddir voru frá upphafi árs 2009 til loka apríl 2011. Samkvæmt upplýsingum frá Landsbankanum kemur upphæðin í flestum tilvikum til lækkunar lána.