Landsbanki Íslands og önnur aðildarfyrirtæki Lífeyrissjóðs bankamanna hafa undirritað samning um lausn á rekstarvanda Hlutfallsdeildar Lífeyrissjóðs bankamanna, segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands.

Samningurinn er gerður í framhaldi af viðræðum milli Lífeyrissjóðs bankamanna og aðildarfyrirtækja sjóðsins varðandi uppgjör á lífeyrisskuldbindingum við breytingu Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands í hlutafélög í ársbyrjun 1998.

Landsbankinn hefur þegar lagt fyrir fjárhæð sem nægir til greiðslu þess kostnaðar sem af samningnum hlýst fyrir bankann. Gerð samningsins eyðir þannig óvissu um kröfur Hlutfallsdeildar Lífeyrissjóðs bankamanna á hendur Landsbankanum en hefur ekki áhrif á rekstrarniðurstöðu Landsbankans á fjórða ársfjórðungi.