Landsbankinn hefur skrifað undir styrktarsamning við landssamtökin Spítalinn okkar um kynningarstarf vegna uppbyggingar nýs húsnæðis Landspítalans.

Í tilkynningu segir að tilgangur kynningarstarfsins sé að afla stuðnings meðal almennings og stjórnvalda við framkvæmdir við nýbyggingar Landspítala svo þær geti hafist hið fyrsta.

Í tilkynningunni er haft eftir Önnu Stefánsdóttur, formanni samtakanna, að stuðningur Landsbankans sé mjög mikilvægur og að hann hjálpi samtökunum að ná markmiðum sínum með kynningarstarfinu.