Launavísitala hefur lítið breyst frá fyrri mánuði en í júní 2012 var vísitalan 433,1 og hafði þá hækkað um 0,04%. Síðustu tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 6,9%.

Aftur á móti lækkaði vísitala kaupmáttar launa sem var í júní 111,0 stig og hafði þá lækkað um 0,5% milli mánaða. Síðustu 12 mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 1,4%.