Lífeyrissjóður verslunarmanna hefur selt fimm milljónir hluta í Straumi-Burðarási, segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands.

Eignarhlutur sjóðsins, sem nýlega gerði tilraun til að selja hlutinn í heild, minnkar í 4,98% úr 5% við söluna.