John Lindsay hf. hefur keypt kryddframleiðandann Bezt á lambið. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Lindsay sérhæfir sig í innflutningi, heildsölu og framleiðslu á ýmis konar mat- og dagvöru til heimila og mötuneyta. Bezt á lambið framleiðir úrval af kryddblöndum sem seldar hafa verið hér á landi á undanförnum árum.

Að sögn Stefáns S. Guðjónssonar, framkvæmdastjóra Lindsay, mun framleiðslan færast í Klettagarða en engin breyting verður á söluvörum félaganna. Telur Stefán að sameinað félag muni ná fram aukinni hagræðingu auk margvíslegra nýrra tækifæra.

„Okkar markmið er að auka þjónustuna við okkar viðskiptavini með bættu vöruframboði og aukinni þjónustu. Þessi kaup eru liður í því,“ segir Stefán.

Bezt á lambið verður sameinað matvælaframleiðandanum Agnari Ludvigssyni ehf., sem er dótturfélag Lindsay hf.