„Hugmyndir um 4% hlut Íslands í makrílveiðum eru fráleitar og ekki í neinu samræmi við kröfur okkar um réttmæta hlutdeild úr makrílstofninum," segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ. Er sagt frá þessu á vef Fiskifrétta. Í yfirlýsingu hagsmunaaðila í sjávarútvegi í Noregi og ESB, sem birt er á vef norskra útvegsmanna, segir að þeir sætti sig við að Ísland fái í mesta lagi 4% heildaraflans í sinn hlut. Undanfarin ár hefur Ísland hlutur Íslands í heildarveiðinni verið 16-17%

Friðrik segir dylgjur hagsmunaaðila í Noregi og ESB um ósjálfbærar veiðar Íslendinga ómaklegar - ekki síst þegar horft er til þess að þessir aðilar hafi fyrir síðustu vertíð tekið sér 90% þess magns sem Alþjóðahafrannsóknaráðið lagði til að heimilt yrði að veiða. Ekki hafi verið horft til hagsmuna annarra strandríkja við þá ákvörðun og hún því verið bein ávísun á ofveiði úr stofninum.

Frétt Fiskifrétta.