Vegna tæknilegra mistaka hefur verið lokað fyrir viðskipti á First North Iceland það sem eftir lifir dags.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kauphöllinni en jafnframt er beðist velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Viðskipti hefjast á ný á hefðbundnum tíma í fyrramálið.