Skrifstofur Rikisskattsstjóra eru lokaðar í dag vegna starfsmannafundar. Þetta kemur fram á heimasíðu embættisins.

Eftirfarandi tilkynning er birt á síðunni:

Vegna starfsmannafundar eru allar starfsstöðvar RSK lokaðar föstudaginn 11. desember.

Ekki hefur náðst í embættið í morgun enda lokað. Óvenjulegt er að starfsmannafundir standi yfir í heilan vinnudag.