Bankastjóri, framkvæmdastjórar og stjórnarmenn Íslandsbanka hafa farið fram á kaupauka í tengslum við gerð nauðasamnings og mögulega sölu bankans. Greint er frá þessu í Morgunblaðinu .

Þar kemur fram að samkvæmt heimildum blaðsins hafi tillaga verið gerð af hálfu hópsins um að hann fái allt að 1% í bankanum og gæti hluturinn numið allt að tveimur milljörðum króna miðað við bókfært eigið fé í árslok 2014.

Fyrirmyndin að tillögunni er sótt í samkomulag sem gert var árið 2009 og tryggði starfsmönnum Landsbankans 1% hlut í bankanum. Hins vegar er í þessu tilfelli ekki gert ráð fyrir að almennir starfsmenn fái hlutdeild í samningnum.