Sigrún Kristjánsdóttir hefur hafið störf á Evrópuskrifstofu Samtaka atvinnulífsins í Brussel, segir í fréttatilkynningu.

Sigrún er lögfræðingur frá Háskóla Íslands og hefur jafnframt numið Evrópufræði við Europa-Kolleg í Hamborg. Áður hefur Sigrún meðal annars starfað hjá Eftirlitsstofnun EFTA, Héraðsdómi Reykjavíkur og Vinnueftirliti ríkisins.

Hún tekur við af Evu Margréti Ævarsdóttur sem lætur innan skamms af störfum á Evrópuskrifstofunni og hefur lögmannsstörf á Lex lögmannsstofu.

Evrópuskrifstofa SA í Brussel var opnuð 1. september 1993. Aðsetur skrifstofunnar er í húsnæði UNICE, Evrópusamtaka atvinnulífsins.

Hlutverk Evrópuskrifstofu atvinnulífsins er fyrst og fremst erindrekstur gagnvart UNICE og hinum ýmsu stofnunum í Evrópusamstarfi. Ennfremur sinnir skrifstofan upplýsingaöflun um Evrópumál fyrir SA sem og fleiri samtök og fyrirtæki á Íslandi.