Þýski bílaframleiðandinn Audi, sem er í eigu Volkswagen, hagnaðist um 1,4 milljarða evra á fyrsta ársfjórðungi ársins. Þetta kemur fram í uppgjöri bílaframleiðandans sem hann birti í vikunni.

Audi seldi 346.147 bíla á tímabilinu og er það mesta sala á einum ársfjörðungi í sögu félagsins. Audi A4 var mest seldi bíllinn á tímabilinu en alls seldust 53 þúsund bílar af gerðinni.