Fiskbúðin Fiskikóngurinn hagnaðist um 4,6 milljónir króna á síðasta ári og er það samdráttur frá árinu 2013, þegar fyrirtækið hagnaðist um 12,7 milljónir.

Handbært fé frá rekstri var neikvætt um 7 millj- ónir króna, aðallega vegna þess að rekstrartengdar skuldir voru greiddar niður um 34 milljónir króna á árinu.

Eignir Fiskikóngsins voru metnar á 125 milljónir króna í lok síðasta árs og eigið fé fyrirtækisins á 27,6 milljónir. Kristján Berg Ásgeirsson er framkvæmdastjóri Fiskikóngsins.