Eins og greint var frá á föstudag var fyrsti námshópurinn í þjónustustjórnun brautskráður frá Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands fyrir helgi.

Hér til hliðar má sjá myndir af athöfninni og hópnum sjálfum. Með því að smella á númerin í boxinu er valin ný mynd.

Í fréttatilkynningu frá Háskóla Íslands segir að miðað við aðsókn í námið sé ljóst að mikil þörf var á námi á borð við þetta.

„Eftir námið hafa nemendur öðlast skilning á þeim sérstöku viðfangsefnum er snúa að undirbúningi, hönnun og framkvæmd þjónustu sem og mati á gæðum hennar. Þeir eru því í stakk búnir að takast á við krefjandi stjórnunarstarf í þjónustufyrirtækjum,“ segir í fréttatilkynningunni.