Neytendastofa hefur lagt 200.000 kr. stjórnvaldssekt á Og fjarskipti ehf., rekstraraðila Vodafone, þar sem fyrirtækið braut gegn ákvörðun stofnunarinnar um banni við notkun á orðinu fríkeypis.

Þetta kemur fram á vef Neytendastofu en þann 30. janúar 2009, tók stofnunin þá ákvörðun að banna Vodafone notkun á orðinu fríkeypis fyrir þjónustu sem er háð greiðslu fyrir aðra þjónustu.

Með ákvörðun Neytendastofu var Vodafone gert að fjarlægja orðið af heimasíðu sinni að viðlögðum dagsektum og með nýrri ákvörðun stofnunarinnar er lögð á fyrirtækið stjórnvaldssekt vegna auglýsingaskiltis við skrifstofu þess og vegna rafrænnar auglýsinga þar sem notast er við orðið fríkeypis.

Sjá nánar á vef Neytendastofu.