Nafni NordVest Verðbréfa, sem er með kauphallaraðilaauðkennið: NOV, hefur verið breytt. Félagið heitir nú Reykjavík Capital hf. Nafnabreytingin verður virk í viðskiptakerfi OMX Nordic Exchange frá og með 31. mars nk. Á sama tíma verður kauphallaraðilaauðkenni Reykjavik Capital breytt. Nýja auðkennið verður RCA, samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar.

Reykjavík Capital er aðili að hlutabréfa- og skuldabréfamörkuðum OMX Nordic Exchange Iceland og hlutabréfamörkuðum OMX Nordic Exchange Stockholm og OMX Nordic Exchange Helsinki.