Verslunin Sports Direct opnar á laugardaginn nýja 2000 fermetra verslun í Lindum í Kópavogi. Versluninni á Smáratorgi verðuur lokað á morgun klukkan 18.

Sports Direct tók upphaflega til starfa á Smáratorgi þann 26. maí í fyrra. Í tilkynningu frá Sigurði Pálma Sigurbjörnssyni, eiganda verslunarinnar, kemur fram að með tilkomu nýrrar og stærri verslunar verði að minnsta kosti tíu ný stöðugildi til. Þá verður að hans sögn enn meira úrval en áður. Nú sem áður verði áherslan lögð á lágt verð.