Nýherji hf. undirritaði í dag samning um kaup á danska SAP ráðgjafar- og hugbúnaðarfyrirtækinu AppliCon A/S. AppliCon A/S er einn stærsti samstarfsaðili SAP í Danmörku og eitt af öflugri SAP ráðgjafarfyrirtækjum þar í landi. Kaupin eru í samræmi við stefnu Nýherja að auka starfssemi fyrirtækisins erlendis á sviði hugbúnaðarþjónustu og upplýsingatækni.

Hugbúnaðarsvið Nýherja hefur á undanförnum árum starfað að ýmsum verkefnum erlendis, einkum fyrir íslensk útrásarfyrirtæki, og haft fjölmarga íslenska og erlenda SAP ráðgjafa í vinnu í þeim verkefnum. Kaupin á AppliCon A/S eru liður í að styðja betur við þá starfsemi og skapa forsendur fyrir frekari sölu SAP og Microsoft lausna, sem þróaðar hafa verið hjá Nýherja, sem og ráðgjafarvinnu á erlendum mörkuðum.