Tæknirisinn Apple kynnti í dag nýjan iPhone síma. Margir bjuggust við útlitsbreytingum og að nýi síminn fengi númerið 5, en ekki 4s.

Síminn er eins í útliti en að innan er hann mikið breyttur. Hann er mun hraðvirkaði því örgjörvi símans er tvisvar sinnum öflugri en í eldri útgáfu. Rafhlaðan er einnig mun endingarbetri og myndavélin hefur verið endurbætt.

Hægt er að eiga munnleg samskipti við símann eins og sést vel í kynningarmyndbandinu hér.

Hægt er að panta símann frá 7. október en hann kemur í búðir í Bandaríkjunum þann 14. október.