Felix Gylfason.
Felix Gylfason.

Felix Gylfason hefur verið ráðinn sem markaðs- og sölustjóri hjá Umslagi ehf. Felix lauk B.Sc í markaðsfræðum frá Arizona State University í Bandaríkjunum en einnig hefur hann lokið námi í verkefnastjórnun frá Endurmenntun Háskóla Íslands.

Felix hefur unnið við ýmis markaðs- og kynningarstörf, meðal annars fyrir eMarketing í Arizona, Brimborg, ABS Media, 66°NORÐUR og flugfélagið WOW air.