Starfsmönnum ríkis og sveitarfélaga fjölgaði um 11.400 á árunum 2015 til 2021 sé litið til talna vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar. Það er rúmlega 20% fjölgun, en á sama tíma fjölgaði fólki á almennum vinnumarkaði um 4.200, sem var 3% aukning.

Þetta er á meðal niðurstaðna skýrslu Intellecon, sem unnin var fyrir Félag atvinnurekenda. Skýrslan ber yfirskriftina „Er ekki bara best að vinna hjá ríkinu“ og verður kynnt á opnum fundi FA kl. 16 í dag. Streymi af fundinum má finna hér að neðan.

Önnur meginniðurstaða skýrslunnar er að laun hjá hinu opinbera eru orðin samkeppnisfær við almenna markaðinn að sögn FA.

„Greidd laun í opinberri stjórnsýslu eru almennt hærri en í flestum öðrum starfsgreinum. Að þessu gefnu má ætla að eftirsóknara sé en áður að vinna hjá hinu opinbera.“

Á árunum 2008 til 2021 hækkaði hlutfall vinnandi fólks sem starfaði hjá hinu opinbera úr 30% í 33%. Hlutfall opinbera vinnumarkaðarins af heildarvinnuafli er með því hæsta sem þekkist meðal landa OECD og er eingöngu hærra í Danmörku, Svíþjóð og Noregi.

Hlutfall kvenna á vinnumarkaði sem vinnur hjá hinu opinbera er mun hærra en karla. Þannig eru 73% af starfsmönnum sveitarfélaga konur en 66% ríkisstarfsmanna. Á árunum 2008-2021 hækkaði hlutfall vinnandi kvenna í starfi hjá hinu opinbera úr 43% í 47%.

Starfsfólki af erlendum uppruna hefur fjölgað mjög á vinnumarkaði en aðeins 16% erlendra starfsmanna störfuðu hjá hinu opinbera árið 2021.

Opinn fundur FA hefst kl. 16:

Dagskrá:

Inngangsorð
Guðrún Ragna Garðarsdóttir, formaður Félags atvinnurekenda

Er ekki bara best að vinna hjá ríkinu?
Gunnar Haraldsson, framkvæmdastjóri Intellecon

Verða verðmæti til í skúffum embættismanna?
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis

Fyrirmyndarríkið Ísland
Bogi Þór Siguroddsson, stjórnarformaður og eigandi Fagkaupa

Vinnumarkaðsmódel á hvolfi
Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA

Fundarstjóri er Anna Kristín Kristjánsdóttir, varaformaður FA.