Þórir Hrafnsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Björns Bjarnasonar dóms- og kirkjumálaráðherra.

Þórir hefur starfað sem markaðsráðgjafi á Íslensku auglýsingastofunni undanfarin ár. Þar áður starfaði hann m.a. hjá Háskólanum í Reykjavík, útgáfufyrirtækinu Fróða og Prentsmiðjunni Odda.

Þórir lauk MBA-prófi frá La Trobe háskólanum í Melbourne árið 2004. Að auki hefur hann BA-próf í íslensku og sögu frá Háskóla Íslands og próf í hagnýtri fjölmiðlafræði frá HÍ.

Þórir er kvænur Elínu Einarsdóttur og eiga þau fimm börn.