Samgönguráðuneytið hefur skrifað sveitarfélögum og óskað eftir upplýsingum um reglur þeirra varðandi afslátt á fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega og hvernig birtingu þeirra sé háttað. Óskað er eftir þessum upplýsingum eigi síðar en 2. febrúar næstkomandi.

Þetta kemur fram á vef samgönguráðuneytisins.

Tilefnið er úrskurður ráðuneytisins á síðasta ári í máli er varðaði ágreining um hvort sveitarfélagi væri heimilt að veita flatan afslátt á fasteignaskatti eða binda hann eingöngu við tekjur. Sveitarfélagið sem hér er nefnt er Garðabær.

Í málinu kom fram að sveitarfélag hafði um árabil veitt elli- og örorkulífeyrisþegum afslátt af fasteignaskatti og eftir atvikum fellt hann niður. Í því sambandi hafi verið tekið mið af tekjum viðkomandi. Árið 2003 var hins vegar gerð sú viðbót við tekjutengda afsláttarkerfið að boðinn var flatur afsláttur fyrir ákveðinn aldurshóp. Fasteignaskattur umræddra aðila féll þannig niður þegar árstekjur voru undir ákveðnum viðmiðunarmörkum en við önnur mörk var veittur 80% afsláttur. Fyrir utan þennan tekjutengda afslátt var öllum elli- og örorkulífeyrisþegum veitt föst fjárhæð í afslátt og þeir sem voru 70 ára og eldri fengu hærri afslátt.

Úrskurðurinn var á þá leið að slíkur flatur afsláttur væri ekki í samræmi við lög um tekjustofna sveitarfélaga.