Vegna atburða undanfarinna daga og í ljósi þess að Samson eignarhaldsfélag ehf. fór fram á greiðslustöðvun fyrr í dag er mikil óvissa um fyrirhuguð kaup fjárfesta á kröfu á hendur Eimskipafélaginu eins og fram kom í tilkynningu félagsins 10. september sl..

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eimskip en krafan er tilkomin vegna gjaldþrots XL og er að fjárhæð 207 milljónir evra.

Í tilkynningunni kemur fram að óvissa ríki því um kröfuna og þar með um langtímafjármögnun félagsins.

„Áfram er unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins og sala eigna er í eðlilegu horfi,“ segir í tilkynningunni.

„Flutningastarfsemi Eimskips er í góðum rekstri, dagleg starfsemi er tryggð og þjónusta félagsins er með óbreyttum hætti.“