Þjóðverjinn Peter Schreyer hefur verið ráðinn sem einn af forstjórum Kia Motors. Schreyer hefur starfað sem yfirhönnuður Kia undanfarin sjö ár og átt stærstan þátt í mikilli velgengni Kia bíla á hönnunarsviðinu. Schreyer hefur ásamt hönnunarteymi Kia endurhannað bílaflota suður-kóreska bílaframleiðandans sem unnið hefur til fjölda hönnunarverðlauna um allan heim á undanförnum árum. Má þar nefna bílanna Sportage, Optima, Rio, Picanto, cee‘d og pro_cee‘d. Samhliða forstjórastarfinu mun hann koma áfram að hönnun bíla Kia.

Schreyer verður einn af þremur forstjórum Kia Motors og fyrsti Evrópubúinn sem gegnir starfinu. Hann var áður hönnuður hjá þýsku bílaframleiðendunum Audi og Volkswagen og hannaði m.a. endurnýjuðu VW Bjölluna og Audi TT sportbílinn. Kia Motors hefur átt mikilli velgengni að fagna undanfarin misseri og hefur sala fyrirtækisins margfaldast. Á Íslandi er Kia Motors þriðja mest selda bíltegundin og var með hátt í 10% markaðshlutdeild á árinu 2012.