Opinber heimsókn forseta Íslands Ólafs Ragnars Grímssonar sem hófst í Katar síðdegis í gær hefur þegar skilað víðtækum árangri, segir í fréttatilkynningu.

Í viðræðum forseta og emírsins af Katar, Sheikh Hamad Bin Khalifa Al Thani, kom fram eindreginn vilji þjóðarleiðtoga Katar til að kanna rækilega möguleika á náinni samvinnu við Íslendinga á sviði banka- og fjármála, heilbrigðismála og rannsókna í læknavísindum, nýtingu hreinnar orku, háskólamenntunar og rannsókna ásamt því að þróa samræður um hvernig smærri ríki eins og Ísland og Katar gætu í sameiningu haft áhrif á stefnur og strauma á alþjóðavísu, segir í fréttatilkynningunni.

Katar er meðal auðugustu ríkja í veröldinni. Tekjur þeirra frá gasauðlindum eru nú þegar orðnar ein öflugasta fjármagnsuppspretta í heiminum, segir í fréttatilkynningunni. Þær fjárhæðir sem landið hefur til ráðstöfunar í fjárfestingar og verkefni víða um heim nema árlega margföldum þjóðarútgjöldum þessa auðuga ríkis.

Í viðræðum forseta Íslands og emírsins af Katar og á fundum iðnaðarráðherra Össurar Skarphéðinssonar og orkumálaráðherra Katar var farið yfir fjölmörg verkefni sem íslenskir bankar og fyrirtæki, háskólar og rannsóknastofnanir gætu komið að. Leiðtogar Katar vilja vinna hratt að þessum verkefnum og óskuðu eftir því að á næstu sex mánuðum næðust niðurstöður varðandi ákveðin sameiginleg verkefni, meðal annars á sviði fjárfestinga.

Einnig yrði komið á reglubundnum tengslum milli háskóla og rannsóknastofnunar Katar, Qatar Foundation, og vísindasamfélagsins á Íslandi. Innan þessarar stofnunar eru allir helstu háskólar og rannsóknastofnanir landsins, og mun hún senda fulltrúa sína til Íslands á næstu vikum.

Leiðtogar Katar lögðu áherslu á að þessi nýja samvinna Íslands og Katar væri í anda stefnunnar um samstarf smárra ríkja. Nauðsynlegt væri að slík ríki beittu sér fyrir nýjungum á alþjóðavettvangi, bæði í viðskiptum, vísindum og alþjóðlegri stefnumótun. Ákveðið var að forseti Íslands og emírinn af Katar hefðu með sér náið samráð á næstu vikum og mánuðum. Jafnframt lýsti emírinn áhuga á að koma í heimsókn til Íslands næsta sumar.

Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra og fjármálaráðherra Katar Yousef Kamal undirrituðu fyrr í dag rammasamning um samstarf ríkjanna á sviði efnahags-, viðskipta- og tæknimála og jafnframt samkomulag um að greiða fyrir samskiptum á sviði ferðamála.