Vefsíða norsku kauphallarinnar hefur legið niðri frá í gær. Guro Steine, samskiptastjóri kauphallarinnar, segir í samtali við miðilinn e24.no að svo virðist sem árás hafi verið gerð á síðuna og hafi því verið ákveðið að taka hana niður um stundarsakir.

Steine segir að þótt vefsíðan virki ekki nú um stundir þá gangi viðskipti þar með eðlilegum hætti.