Öll félög á Aðalmarkaði Kauphallarinnar lækkuðu nema Icelandair sem hækkaði um 4,28% í 4 milljóna króna viðskiptum. Úrvalsvísitalan lækkaði um 2,06% í viðskiptum dagsins en veltan á markaði nam 834 milljónum króna.

Eik lækkaði mest í viðskiptum dagsins eða um 4,52% í 59 milljóna króna viðskiptum. Festi lækkaði næst mest eða um 3,66% í 65 milljóna króna viðskiptum. Þau félög sem stóðu í stað voru Heimavellir, Eimskip og Sýn.

Þá lækkaði TM um 3,59% í 49 milljóna króna viðskiptum og Arion lækkaði um 3,21% í 118 milljóna króna viðskiptum.