Gengi hlutabréfa fasteignafélagsins Regins hækkaði um 4,02% í fyrstu viðskiptum dagsins í Kauphöllinni í dag. Eins og greint var frá fyrr í morgun seldi Landsbankinn 25% hlut sinn í Reginn í gær fyrir rétt rúma fjóra milljarða króna. Gengi hlutabréfa félagsins stendur nú í 12,95 krónum á hlut.

Samþykkt tilboð í hlutabréf Regins í útboðinu námu á bilinu 12,20 til 12,81 krónu á hlut og var vegið meðalgengi samþykktra tilboða 12,52 krónur á hlut. Til samanburðar stóð gengi hlutabréfa Regins í 12,45 krónum á hlut í gær.