Landic Property vinnur nú að því að móta nýja stefnu fyrir félagið í kjölfarið á miklum breytingum á alþjóðlegum fjármálamörkuðum.

Samkvæmt tilkynningu félagsins felur vinnan meðal annars í sér úttekt á rekstri og efnahag félagsins með það að markmiði að styrkja fjárhagsstöðu þess.

Þá hefur Landic Property samið við UBS Investment Bank og Catella Corporate Finance um ráðgjöf við stefnumótunina.  Niðurstöðu er að vænta fyrir lok janúar 2009.

„Ég er bjartsýnn eftir frumviðræður við helstu hagsmunaaðila félagsins að þessi vinna skili góðum árangri og að eftir standi sterkt fasteignafélag,“ segir Viðar Þorkelsson, forstjóri Landic Property í tilkynningunni.

Þá kemur fram að áhugi hefur komið fram um að fjárfesta í félaginu.