Formaður Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF), Lárus Welding, sagði í ræðu á árlegum SFF-degi sem fram fór í Borgarleikhúsinu í morgun jákvætt að ríkisstjórnin stefni að því að tryggja að fjármálastarfsemi geti áfram vaxið hér á landi og sótt inn á ný svið í samkeppni við önnur markaðssvæði - eins og lýst er í stefnuyfirlýsingu hennar.

„Í ljósi þessa skýtur skökku við að stjórnvöld skuli enn sjálf reka banka sem nýtur ýmissa forréttinda og keppir í skjóli þeirra um viðskiptamenn við fjármálafyrirtæki á frjálsum markaði," sagði Lárus og velti því upp hvort núverandi vanda peningastefnunnar og ójafnvægi efnahagkerfisins megi að hluta til rekja til þess að skipulagi Íbúðalánasjóðs var ekki breytt samhliða því að Seðlabanka var gert að taka upp verðbólgumarkmið.

Minnti Lárus jafnframt á að þátttaka ríkisins á íbúðalánamarkaði sé nú til rannsóknar hjá ESA, (Eftirlitsstofnun EFTA) auk þess sem hún hafi verið harðlega gagnrýnd af fjölda  innlendra sem erlendra aðila, eins og IMF, OECD og Seðlabanka Íslands.

Þetta kemur fram á vef Samtaka atvinnulífsins.