Stjórnir þriggja danskra dótturfélaga Landic Property hf., Keops Development A/S, Landic Property A/S og Landic Investment A/S, hafa í dag lagt fram beiðni um gjaldþrotaskipti hjá dómstólum í Kaupmannahöfn.

Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar en þar kemur fram að starfsemi þeirra félaga sem eiga og reka fasteignasöfn á Íslandi, Svíþjóð og í Danmörku er óbreytt og leigutakar félagsins verða ekki fyrir áhrifum.

„Fjárhagsleg endurskipulagning starfsemi Landic Property á Íslandi heldur áfram skv. áætlun,“ segir tilkynningunni.

Þá kemur fram að síðastliðna tvo mánuði hefur verið unnið að frágangi á sölu fjölda erlendra dótturfélaga Landic Property, sem tilkynnt var þann 16. apríl sl. Sala fasteignasafns Landic Property í Finnlandi er frágengin, og áfram verður unnið að sölu á erlendu fasteignasafni Landic Property, að undanskildum ofangreindum þremur félögum, þar sem endurskipulagning og sala þeirra félaga gekk ekki eftir.

„Það eru vissulega vonbrigði að ekki hafi tekist að bjarga þessum dönsku dótturfélögum frá gjaldþroti,“ segir Viðar Þorkelsson, forstjóri Landic Property í tilkynningunni.

„Söluferli annarra erlendra eigna Landic Property heldur hins vegar áfram, sem og fjárhagsleg endurskipulagning móðurfélagsins í samstarfi við lánardrottna. Landic Property mun í framtíðinni einbeita sér að rekstri fasteigna á Íslandi þar sem dótturfélag þess Landic Ísland er stærsta fasteignafélag landsins, með yfir 120 fasteignir sem samtals eru um 400 þúsund fermetrar.  Sá rekstur gengur vel og á því munum við byggja.“