Rósa Stefánsdóttir
Rósa Stefánsdóttir
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Rósa Stefánsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri vefstofunnar Sendiráðið.

Rósa er menntaður margmiðlunarhönnuður og hefur reynslu á sviði vefþróunar, samfélagsmiðla og markaðssetningar á netinu en hún er starfandi formaður Samtaka vefiðnaðarins, SVEF. Rósa var áður markaðsstjóri rafrænna viðskipta hjá Iceland Travel, og leiddi þar vefdeild fyrirtækisins og rafrænt markaðsstarf.

Þar áður starfaði hún sem sérfræðingur í netmarkaðssetningu hjá Bláa lóninu og stýrði endurnýjun á vef Bláa lónsins.