Samdráttur varð í fasteignaviðskiptum í Bandaríkjunum um 0.8 prósent í desember í fyrra en samdráttur á fasteignamarkaði á árinu var sá mesti í sautján ár eða um 8.4%.

Mikil uppsveifla hefur verið á fasteignamarkaðnum í landinu undanfarin ár með tilheyrandi verðhækkunum. Þrátt fyrir samdrátt féll meðalfasteignaverð aðeins um eitt prósent árið 2006 en það hafði hækkað 12.4 prósent árið á undan.