Samherji hefur ákveðið að greiða 300 starfsmönnum sínum í landi 100 þúsund króna launauppbót, miðað við fullt starf. Uppbótin verður greidd með launum núna um mánaðamótin og bætist við umsamda desemberuppbót sem greidd er á sama tíma.

Miðað við mjög krefjandi rekstrarumhverfi hefur rekstur Samherja gengið vel á árinu. Starfsfólk félagsins hefur lagt sig fram í störfum sínum og um að þjónusta kröfuharða viðskiptavini félagsins eftir bestu getu. Fyrir það vill Samherji þakka með þessari launauppbót núna í aðdraganda jólanna.

"Þetta er í annað skiptið á árinu sem Samherji greiðir starfsfólki sínu launauppbót umfram kjarasamninga, en það var einnig gert síðastliðið vor. Nú fer í hönd einn útgjaldamesti mánuður ársins hjá flestum fjölskyldum og þess vegna ákváðum við nú að umbuna starfsfólki okkar fyrir frábært starf á árinu," segir Gestur Geirsson, framkvæmdastjóri landvinnslu Samherja.