Í morgun var skrifað undir samninga hjá Lánasýslu ríkisins í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði, að því er fram kemur í frétt. Markmiðið með samningnum er að styrkja aðgang ríkissjóðs að lánsfé og efla verðmyndun á eftirmarkaði.

Frá 30. maí 2006 hafa fimm fjármálastofnanir heimild til að kalla sig: "Aðalmiðlara með ríkisverðbréf". Þær eru: Glitnir banki, KB banki, Landsbanki Íslands, MP Fjárfestingarbanki og Straumur Fjárfestingarbanki.

Samningur þessi er að flestu leyti sambærilegur og fyrri samningar um sama efni utan þess að nú nær einn samningur til allra ríkisverðbréfa í stað tveggja áður. Helstu atriði samningsins eru þessi:

Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að útboðum Lánasýslu ríkisins.

Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að verðbréfalánum sem Lánasýsla ríkisins veitir.

Aðalmiðlari skuldbindur sig til að setja fram markaðsmyndandi tilboð í útboðum ríkisverðbréfa fyrir a.m.k. 500 milljónir króna.

Aðalmiðlari er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir alla markflokka ríkisbréfa og ríkisvíxla og setur fram kaup- og sölutilboð að lágmarki 100 m.kr. að nafnvirði í hvern flokk ríkisbréfa og ríkisvíxla í Kauphöll Íslands, utan þeirra flokka ríkisvíxla og ríkisbréfa sem eiga styttra en þrjá mánuði til gjalddaga og ríkisbréf í flokki RIKB 07 0209 en í þeim flokkum miðast skyldan við að setja fram kauptilboð.

Aðalmiðlari skuldbindur sig til þess að verðmunur kaup- og sölutilboða hans haldist innan tiltekinna marka sem nánar eru skilgreind í samningunum.

Aðalmiðlara er skylt að endurnýja tilboð sín innan 10 mínútna frá því að þeim hefur verið tekið. Ef aðalmiðlari á viðskipti á einum viðskiptadegi fyrir 600 m.kr. að nafnvirði í tilteknum flokki er honum heimilt að víkja út frá hámarksmun kaup- og sölutilboða.

Aðalmiðlari skilar skýrslum um umfang viðskipta sinna með ríkisverðbréf til Lánasýslu ríkisins á samningstímanum.

Samningurinn gildir frá 30. maí 2006 til 31. maí 2007. Þóknun til allra aðalmiðlara ríkisskuldabréfa á samningstímanum verður 160 m.kr.