Carl Ichan er einn af þekktustu fjárfestum Bandaríkjanna, en hann hefur stjórnað vogunarsjóðum í áraraðir og auðgast verulega fyrir vikið.

Ichan er þó ekki aðeins þekktur fyrir athafnamennsku sína, heldur er hann einnig einn af þekktustu stuðningsmönnum Donald Trumps.

Ichan mun koma til með að veita Trump og hans teymi ráðgjöf og því hefur gengi bréfa Ichan Enterprises hækkað talsvert á síðustu misserum.

Fyrir utan það að vera á Forbeslistanum, virðast þeir eiga fleira sameiginlegt. Eitt af því er áhugi þeirra á samskiptamiðlinum Twitter.

Þó svo að Trump veki almenn meiri athygli með tístum sínum, hefur Ichan ekki alveg flogið undir radarinn. Fyrr í dag tísti hann til að mynda hrósum til Trump og bætti því við að sósíalisminn væri loksins á undanhaldi.